|
|
08.10.2009 23:13:32 / katakata
.
»
13.11.2008 00:15:30 / katakata
Olía... sagði ei-r olía? Er þá ekki málið að leika sér smá, gera ei-ð skemmtilegt? Jahh... til dæmis eins og fursarnir þarna í Dubai eru að gera, manngerðar eyjur í allskonar lögun! Ég legg til að við tökum þá okkur til fyrirmyndar, búum til manngerðar eyjar úr olíupeningnum. Pannt hanna eyjarnar... eða, ég er nú þegar búin að hanna þær... útkomuna má sjá hér að neðan.  Eða ekki? KH
»
16.10.2008 17:04:58 / katakata
Fyrir 2 árum síðan fæddist góðkunningi margra, hann Mannfreð á Októberfest. Hann átti heima á símanum mínum í tæp 2 ár, en varð viðskila í Kína. Blessuð sé minning hans. Hefði hann tórað í gegnum Kína, þá hefði hann orðið 2 ára síðustu helgi. Nýr vinur minn fæddist aftur á móti þegar Mannfred hefði orðið 2 ára, hann Rúdolf. Rúdolf kom í heiminn föstudagskvöld síðastliðið og á heima á vinstra handarbaki mínu við þumalinn. Hann var slys, en að sjálfsögðu var hann velkominn. Ég hef þann grun að hann verði hjá mér til æviloka, ekki nema ég láti eyða honum, sem mér þykir harla ólíklegt. Að vísu hefur Rúdolf verið mér til trafala, ég hef ekki kunnað að meðhöndla hann rétt. Fólk vildi ekki sitja við hliðina á mér í skólanum vegna hans, frá honum kemur sársauki og þar að auki var hann orðinn grænn að lit. Því ákvað ég að leita ráða hjá fagmönnum apóteks, sem leist ekkert á blikuna og sendu mig með Rúdolf til læknis. Hjá lækninum tók læknir við okkur, og það þurfti að kroppa þetta græna harnaða ógeð, sem var fast yfir Rúdolfi af. Það tók sinn tíma og sín tár, vottur bar á ælu í hálsi mér... en að lokum tókst þetta nú. Ég sem var búin að passa mig svoooo vel á því að kroppa ekki í hann, og svo var það bara lausnin?! Berglind hefur þá hugmynd hvort það sé ekki best að græða húð af rassi mínum á Rúdolf, það er alveg spurning, það væri allavega dulítið fyndið... að þegar herramaður kyssir á hönd mína, þá gæti ég sagt að hann hafi í raun verið að kyssa rassinn minn! KH p.s. allar málvillur og stafsetningarvillur eru viljandi gerðar, svo ég þygg engar leiðréttingar. Hörður og Kata þetta kallast stíll, samanber Halldór Laxness, eins og Einar vinur minn og bloggunnandi hefur nefnt.
»
06.10.2008 18:16:23 / katakata
.
»
08.08.2008 15:40:22 / katakata
Já, kæru lesendur, ógurlega hommahelgin nálgast! Á morgun er hommadagurinn sjálfur og mun ég standa í fyrsta skipti í mínu lífi veifandi hommafánanum við laugarveginn þegar hommarnir fara hjá! Ég hef aldrei áður verið viðstödd hommaskrúðgöngunni svo ég hlakka homma mikið til. Ég fór í fyrst skiptið á hommabarinn q-bar síðasta sunnudag, eða 1. skiptið þangað á djammið þ.e.a.s. Hef mætt þangað í afmæli áður. En þá voru nú fáir hommar á sveimi. Þegar ég steig inn þá tók á móti mér hið skemmtilega og jú hommalega lag.... don´t want no short dick men. uaaa. Ég vann nokkrar lessur í þömbukeppni, fékk sogblett af lessum ojj og dansaði hommalega. Þetta var gríðarskemmtileg og góð upphitun fyrir hommadaginn á morgun. Það fer að styttast í að sumar"fríið" klárist og alvara lífsins taki við. En ekki skal örvænta... því haustin eru jú ágæt fyrir utan geitungaviðbjóðana, þið munið... októberfest og airwaves... ahhhh namminamm! Svo vildi ég líka segja frá því þegar við Andri fórum í ótrúlega rómatískan og ástríðufullan göngutúr um daginn. Við gengum um í sólsetrinu í miðbæ Reykjavíkur, leiddumst hönd í hönd og kysstumst. Alveg dásamlegt lífið þegar maður er svona ástfanginn... ekki sammála ? kv, HommaKH
»
29.07.2008 15:08:31 / katakata
Geiri geitungar stakk mig í geirvörtuna stórar ljótar stungur geiraenglar spiluðu á hörpuna.
Margir og mikilvægir hlutir hafa gerst í mínu lífi síðustu daga og mánuði... Hvort er minna pirrandi stöðugur barnsgrátur eða geitungahjörð? Begga litla gifti sig síðasta laugardag. Nú er hún orðin gift gömul kerling og er er örugglega að reyna að búa til litla sjálfa sig as we speek! (nei djók). Ég hélt ræðu, við stelpurnar sungum og dönsuðum, já... það var kannski bara gott að enginn var með videokameru? En þetta brillupp var frábært í alla staði, gott veður, fjölmennt og glæsilegt, stöðug skemmtiatriði og frábær matur.
Hvað á að gera um verslunarmannahelina? KH
»
03.07.2008 00:20:41 / katakata
Í maí og byrjun júní fór ég til Kína og Tælands. Hér kemur ljóð um það.
katarína fór til Kína, krúsaði í Tælandi, alls ekkert ælandi, Kom svo heim, Og fannst það leim.
Svona það helsta í þessari ferð: London-nú hef ég komið til Lundúna (bara á flugvöllinn samt) Dubai-þangað hef ég stigið fæti mínum (bara á flugvöllinn þó) Peking-Torg hins himneska friðar, forboðna borgin, Hutong (gamli bærinn í Peking), Kínamúrinn (úff hann var brattur), sumarhöllin, urban planing safn, Peking the royal duck og fleira og fleria... Xian-Terracotta hermennirnir, stórmerkilegt fyrirbæri! Guillin-Bjórverksmiðja Sigling í 4 klst frá Guillin til Yangshue, æðislega stórkoslega skemmtileg og frábær sigling með meiriháttar náttúru! Borðaði krabba í heilu lagi og skjaldböku, staupaði snákavín. Yangshue-litli sæti krúttubærinn, fór í sjómann við Kínverja, hjólatúr um hrísgrjónaakra. Rúta aftur til Guillin og þaðan farið til... Shanghai-skoðuðum shanghai by night (ljósaborgin mikla), fórum í turn sem var ofsa hár, fórum í hraðskriðustu lest í heimi 430 km/klst, H&M, búddaklaustur Bangkok-5 stjörnu hótel, kemst inn á top 10 hótel í heimi var okkur sagt, kokteilar í sundlauginni, HÓRUR OG LADYBOYS (ihhhjukk), svaka gull búddaklaustur, china town, raftækjamoll. Puket-Kata Beach! Úff... þar tók við næs life og afslappelsi eftir ferðalagið mikla! Kokteilar í sundinni, sjórinn jafn heitur og sundlaugar RVK, sól og sól og sól og yndislegheit! Jet ski, vespuferð með ladyboy, tjútt og trall, Monkey beach, spítt bátur, snorkla, ströndin þar sem the Beach var tekin upp, PhiPhi island, (maður kom inn í teiknimyndina finding nemo þegar maður var að snorkla).
Já og þá var maður kominn heim.
Annars fór ég líka í skemmtilegt ferðalag í dag. Og ég samdi ljóð.
kata í sveitina fór, sækja sinn bróður í hala, lunda og sel hún sá syngja í kór, og bróður sinn baða sig í bala.
Allt satt nema síðasta línan. En það hefði þó verið fyndið. En við Villi big brotha lögðum í hann árla morguns enda farin að sakna "litla" bró mikið. Stoppuðum í Dyrhóley sem er syðsti oddi Íslands. Þar sáum við Lunda. Tókum svo pullustopp á Klaustri og sáum þar brjóst og systur. Sáum sel synda um jökulsárlón, úff... það er sko flottur must see staður! Þáðum svo kaffidreitil á hala, og skoðuðum safn um Þórberg Þórðarson, stórskemmtilegt og glæsilegt alveg hreynt. Jæja, segið svo að ég bloggi ekki ... iss.....
BLee. KH
»
27.05.2008 17:11:45 / katakata
Einu sinni var stelpa sem hét katakata. En svo fór kata til kína og skildi kötu eftir. Núna er bara kata og henni leiðist. KOMDU HEIM KATA!!! Þín kata.
»
13.05.2008 22:59:20 / katakata
Á morgun verð ég að læra undir síðasta prófið. Ekki á morgun heldur hinn mun ég klára prófin og fá mér bjór. Ekki á morgun ekki hinn heldur hinn (eða hvernig sem maður svo sem reyndir að segja það) Fer ég til Kína. Eða hvað? Nei, ég fer til London og legg af stað til Dubai. Ekki á morgun ekki hinn ekki hinn heldur hinn fer ég á flugvöllinn í Dubai, og fer svo til Kína. Á leið minni til Kína mun ég sem sagt stoppa í 2 borgum sem ég hef aldrei komið til, Dubai og London. Þá get ég nú loks sagst hafa komið til London. Ég ætla ekki að hika við að mynda mér skoðun um þessar 2 merku borgir, þrátt fyrir stutt flugvallarstopp í þeim báðum. Í Kína er jarðskjálfti. Í Kína er eymd. Jarðskjálftinn lét mig langa ennþá meira að koma með kínabarn heim til Íslands. Á ég að koma með eitt handa þér? Svo mörg munaðarlaus grey eftir hörmungarnar.
Kannski maður verði bara eftir. Það væri ekki amalegt, fyrir kínverja, að fá lengra komna byggingarverkfræðinema og prófessor í Húsagerð til liðs við sig, í uppbyggingunni. Þá færi maður nú til himna, og fengi jafn vel bjór við inngönguna. Jæja, er farin að horfa á gamlakallamynd. KH.
»
29.04.2008 15:22:14 / katakata
Próf, ógeðslegasta orð tilverunnar. Prófin leggjast alltaf illa í mig, sama hvað ég reyni. Ég reyndi að vera jákvæð í þetta skiptið, skellti mér upp í sumó með keitípæ í síðustu viku og tók góðan slurk... með bros á vör og sól í hjarta snéri ég heim í siðmenninguna síðastliðinn föstudag. En nei. Ég er varla búin að læra staf síðan. Ég bara fæ mig ekki í að opna bók, og finn upp allar mögulegu afsakanir til að gera ei-ð annað. Svo spilar það líka inn í að ég fer til Kína daginn eftir að ég klára próf. Þannig að það er mikið í gangi í tilfiningalífi kh, spenningur, stress, tilhlökkun, og så videre. Eitt sem mig langar að gera, og það er að koma með litla kínastelpu heim frá Kína. Jihh hvað ég held að það væri gaman. I´m gonna do it man. kh-in need of beer.
»
14.04.2008 00:35:36 / katakata
...og ég haga mér enn eins og barn. Afmælisgleði ríkti síðustu helgi, og þá djammaði ég í síðasta skipti á mínu 23 aldursári. Ég fagnaði með mínum heitt elskuðu vinum ásamt fleirum. Allir dulbjuggust sem mexicóar... ohh það er svo gaman þegar maður hefur gilda ástæðu til að fá sér tequila skot! Sjálfum afmælisdeginum fagnaði ég svo með reiknilegri aflfræðigleði, grilli og bíóferð. Very very nice. Fyrsta helgin mín á mínu 24 aldursári var ekki alveg jafn vel heppnuð... eða hvað? Við naglastelpurnar unnum íþróttamótið og hlutum bikar. Það var gaman. Á föstudeginum var svo aðalfundur Naglanna, sem þýðir opinn bar allt kvöldið, og allskonar í boði. Síðasta fylleríið fyrir próf, og mín ætlaði sko að taka það með trompi! Það var stórskemmtielgt á aðalfundinum. Bæjarferðin var aftur á móti í verri kanntinum. Ölæði var þar að verki, og það endaði á "auðum mómentum", týndum síma og týndu peningaveski. Laugardagurinn fór nú bara í þynnku.. og kósíheit um kvöldið með henni kötu minni. Svo gerðust þau undur og stórmerki á sunnudeginum, þegar öll mín von var runnin út um að finna föngur mínar á ný, að þegar ég kom heim eftir erfiðisverkefnavinnu, jú viti menn, dótaríið var komið í leitirnar! Það fannst um nóttina fyrir utan kaffibarinn og ei-r heiðarlegur einstaklingur kom því fyrir inni á barnum. Takk fyrir herra heiðarlegi einstaklingur. En þá hefur sem sagt veskið mitt og síminn legið frá föstudagsnóttunni til laugardagsnæturinnar úti... enda er það blautt, en heilt, enn. Jáhh.. allt er nú gott sem endar vel, og þrátt fyrir að hafa gert mig af miklu fífli þarna á föstudagskveldinu þá get ég ekki kvartað yfir því. hahh jáhh KH
»
24.03.2008 16:08:19 / katakata
Besti tími ársins... jeahh! Páskaegg páskaegg páskaskegg háskaskegg ummmmm love it. Góður matur, vinir og bjór. Svo miklu betra en jólin, ekkert stress, betra veður... ekki of hátíðlegt... heldur bara.... fullkomið! Eftir 2 vikur ákkúrat í dag á ég afmæli. Og það sem meira er, þá höfum við klandrakarl búið saman í íbúðinni í ákkúrat heilt ár! Úff... tíminn líður fljótt! Eftir ákkúrat 1 ár og 2 vikur, þá verð ég 25 ára. Og þá á ég afmæli í dimbilvikunni, það er alltaf gaman.
Gleðilega páska, KH
»
05.03.2008 19:08:26 / katakata
Feminístar.. illa íslenskað orð úr heimi enskunnar. Femínistar, jákvætt-neikvætt? Er kúl að vera femínisti? Er kúl að vera á móti femínista? Hvað er femínisti? Væl frá rauðsokkum? Baráttufélag bleiku geimveranna? Saumaklúbbur framakonunnar?
Femínista félag H.Í. var stofnað í vetur. Það hefur ekki farið mikið á því félagi, ekki fyrr en nýlega voru veggir bygginga H.Í. skreyttir með skærbleikum plaggötum, með skilaboðum og staðreyndum á. Ekki fengu þessi upplífgandi bleiku plaggöt góðar viðtökur í köldum vetrinum. Nei, heldur betur ekki. Stúdentar sýndu þessu lítilsvirðingu og göntuðust, hengdu á skrítlur og skrifuðu óviðeigandi orð. Sjaldgæf sjón er að sjá svona viðbrögð við veggspjöldum skólans, sem yfirleitt eru látin alveg í friði. Ég held að ástæðan sé að fólki líkar ekki vel við femínista eins og hann kemur fyrir sjónir á Íslandi. Fólki finnst femínisti vera neikvæður, væl rauðsokkanna, sprottinn af reiðum lessum sem hafa ekki stundað kynlíf í langan tíma. Og þar fram eftir götunum. Það er jú, margt jákvætt við femínista, það titlar sig sem jafnréttisfélag, og hver er svo sum ekki jafnréttissinni? Af hverju heitir femínistafélag H.Í. ekki frekar jafnréttisfélag H.Í.? Og femínistafélag Íslands ekki jafnréttisfélag Íslands? Ég tel mig vera jafnréttissinna, en ég er þó ekki tilbúin að stimpla nafn mitt við ei-ð félag sem vælir út um allan bæ vegna þess að það sé hægt að kaupa klám á netinu í gegnum Íslenskt fyrirbæri, vælir útaf smá djóki hjá Hr. Haarde, og þar fram eftir götunum.
"Femínisti er leiðinlegur, alveg eins og karlremba er leiðinleg" mælti snillingur mikill. Já og mér þykir stjórnmál álíka skemmtileg og þynnka. Svaraði ég í sömu mynnt. Látum kallana vaska upp og hættum þessu væli, KH
»
21.02.2008 13:46:16 / katakata
Jæja þá er maður nú aldeilis búin að liggja í veikindum. Hausverkur, hálsbólga, endalaust hor og hnerr og kvebbs og slobbs... ekki skemmtilegt. En með þessu öllu saman fylgir mikill svefn, en samt svona svefn þar sem maður sefur illa, svitnar mikið og er alltaf að bylta sér og vaknar mikið, alltaf að kíkja á klukkuna... Já, við hjúin erum aldeilis búin að liggja í þessum pakka. Þetta byrjarði allt á mánudaginn og hefur ekki enn tekið enda. Skelltum okkur þó á dubble date með kötu og hennar kalli í gærkveldi, á p.s. I love you. Allir í salnum hafa bókað haldið að ég og Andri höfum verið very emotional, enda héldum við bæði á snítupappír og vorum alltaf að sníta okkur eins og við værum háskælandi. En þegar maður verður svona pínu laaaaasin, þá vill maður ekki gera neitt af viti, ég gat t.d. ómögulega hugsað mér að nýta tímann í lestur og lærdóm. En manni má heldur ekki leiðast. Því er ég orðin háð net-póker eftir þessa veikinda daga mína. Allan daginn út og inn sit ég og spila netpóker og skemmti mér konunglega... er ansi hrædd um að þetta eigi eftir að skemma fyrir mér komandi kennslustundir... kannski maður skilji tölvuna bara eftir heima þegar maður fer í skólann. Jæja, ef þetta kvebb verður ekki farið úr mér fyrir helgi þá tek ég bara gömlu kötuna á þetta og drekk þennan andskota úr mér. kh
»
17.02.2008 16:45:20 / katakata
Í gamla daga þegar Jón og Gunna blogguðu ekki um daginn og veginn en Kata og Kata rugluðu og röfluðu um allan heimsins vanda, þá fékk ég á götum úti hrós fyrir að bæta upp hversdagsleikann í lífi alheimsbúa með skemmtilegum færslum. Þetta gerist enn þann daginn í dag, og get ég allavega talið upp 5 hrós á síðustu mánuðum þó svo að færslurnar hafi nú ekki verið fleiri. Ætli það sé ekki egóið sem lætur mig þrusa hingað inn nú til dags. Enda er maður kominn með myspace, leyniblogg og facebook sér til dægrarstyttingar. Látum bullið byrja. Ég fór á bretti í síðustu viku, ásamt meðlimum brettafélags Íslands, sem lét mig líta út eins og jensa. Eða þannig. Það var svo sweet að tweetybird hefði flogið þarna um. Að renna sér niður hvítar brekkurnar, stökkva smá, detta beint á rassgatið, allt saman hverju öðru skemmtilegra. Mæli með þessi meira en verkfræðinni sem ég mældi líka svona svakalega með þegar ég var að kynna það yndislega nám á Háskóladeginum síðastliðinn laugardag. Maður er endurnærður eftir svona útiveru. Ég lennti í smá skondnu síðasta föstudagskvöld. Ég var með partý fyrir minn háttvirta gamla 6.U M.R. bekk. Svo skundaði fólk niðrí bæ eins og stúdentum sæmir, eftir góða drykkju á Bergþórugötunni. Þegar heim var aftur snúið dró ég nú hana eslku bestu nöfnu mína og sambloggara með mér heim og sagði henni að gista í sófanum. Hún samþykkti það og ég lét hana hafa náttföt og sæng og tilheyrandi. Þegar ég fór svo að búa um skottuna.. sé ég G-streng í sófanum, og ég hugsa ó guð en vandræðalegt að það hafi verið G-strengur af mér í sófanum á meðan á M.R: partýinu mínu stóð, vonandi tók enginn eftir því. Svo fer ég að kíkja á gripinn betur og sé að þetta er sko heldur betur ekki minn g-strengur... ANDRI þetta er ekki minn G-sterngur, hver á eiginlega þennan G-streng! Alveg orðin nett óð, labbar Kata inn á náttfötunum og segir, hvað í andskotanum ertu að gera með G-strenginn minn, Haaaahahahahaha, þá hló ég, og hló og hló. Þau hlóu líka samnemendur mínir þegar ég sagði þeim þessa sögu í gær, og komu fleiri skemmtilegar nærbuxnasögur í kjölfarið sem fékk mann til að emja úr hlátri. Kennarafagnaðurinn var stórkostlegur, svo fyndnir þessir kennarar um leið og þeir hafa fengið sér eitt bjórglas. Verst að ég staupaði mig full mikið niðrí bæ í gær svo ég vaknaði í morgun ælandi, með skurð á hnénu, allavega 4 góða stóra marbletti og rispur hér og þar. Það er Katan, og ég er stolt af því  (Fyrir utan að ég meika ekki í hópverkefni ákkúrat núna og er að beila, skamm á mig fyrir það). KH
»
Síður: 1 2 3 ... 23
|
|